Landslag af Laxá
Veiðistaður við Laxá
Laxá rennur um dalinn

Laxá í Laxárdal

Skruna niður
Laxá

Um ána

Áin rennur 24 km leið ofan af fjöllum, niður í Laxárdal og fellur síðan til sjávar í Skagafjörð við bóndabýlið Sævarland. Veiðisvæðið er mjög langt en það nær frá ósnum upp að Háafossi. Áin býður upp á mikla fjölbreytni, allt frá mjúkum grasbökkum upp í þverhnípt og þröng klettagil en alls eru um 50 merktir veiðistaðir í ánni.

Laxá í Skefilsstaðahreppi er í rúmlega þriggja klukkutíma akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Þegar komið er framhjá Blönduósi er beygt til vinstri og síðan til hægri á Þverárfjallsveg og keyrt yfir litla heiði. Blasir þá hlykkjótt áin við manni þegar keyrt er niður af heiðinni.

Veiðisvæðið

Kort af veiðisvæðinu

Skoðaðu veiðistaðina á gagnvirku korti eða sæktu prentvænt PDF kort hér að neðan.

Smelltu hér til að virkja kortið
PDF · Prentvænt

Sæktu veiðikortið

Yfirlit yfir veiðistaðina sem þú getur prentað út og tekið með í veiðina.

Sækja kort
Áður en haldið er af stað

Veiðireglur og upplýsingar

Helstu reglur, veiðitímar og hagnýtar upplýsingar fyrir Laxá í Laxárdal.

Svæðaskipting

Svæði 1 (Neðra svæði): Frá ósi við Sævarland að brú við Skíðastaði.

Svæði 2 (Efra svæði): Frá brú við Skíðastaði að Háafossi.

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni, ein á svæði 1 og ein á svæði 2. Stranglega er bannað að hafa nema eina stöng í veiði samtímis á sama svæði. Ef tveir eða fleiri eru saman um stöng, skulu þeir vera saman á veiðistað.

Veiðitilhögun

  • Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng; hámarksveiði er 5 laxar.
  • Halda má einum hæng undir 70 cm á stangardag, annars skal öllum laxi sleppt aftur í ána.
  • Særður fiskur skal fá að njóta vafans.
  • Leyfilegt er að halda öllum silungi.
  • Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð.

Verði leyfishafi staðinn að ólöglegum veiðum skal málið ganga til dóms eftir gildandi lögum. Ef um ítrekað brot er að ræða skal leyfishafi brottrækur úr ánni að fullu og öllu.

Veiðileyfi, sem einnig er veiðiskýrsla, verður að skila strax að loknum veiðidegi, hvort sem veiðist eða ekki. Veiðileyfum skal skila í þar til gerðan kassa við Skíðastaði.

Daglegur veiðitími

Almennt
07:00 – 13:00
16:00 – 22:00
Frá 15. ágúst
07:00 – 13:00
15:00 – 21:00

Veiðivarsla

Veiðisvæðið er vaktað með dróna.

Símanúmer veiðivarðar: 892 7706

Aðkoma og staðsetning

Áin er í Skefilsstaðahreppi í Skagafirði. Ef keyrt er úr suðri er best að keyra til vinstri í átt að Skagaströnd þegar komið er fram hjá Blönduósi og svo til hægri í átt að Sauðárkrók yfir Þverárfjall. Góða ferð!